New in Iceland Ráðgjafarstofa fyrir innflytjendur er hér til að aðstoða
þig. Öll þjónusta okkar er ókeypis og er veitt í fullum trúnaði.
Hér geta innflytjendur fengið leiðbeiningar og verið öruggir
um að fá vandaðar upplýsingar um hvernig er að búa á Íslandi.
Við erum í samstarfi við allar helstu stofnanir og
félagasamtök á Íslandi. Þannig getum við saman þjónað þér sem best miðað við þínar þarfir.
Þú getur talað við okkur á ensku, pólsku, spænsku, portúgölsku,
arabísku, litáísku, rússnesku og íslensku. Við veitum símatúlkun fyrir önnur tungumál.